30.10.2008 | 15:09
Klámvísur í kreppunni.(bannað yngri en 18)hehehe
Jón minn hefur litla lyst,
langtum betur aðrir sóttu.
Það var aðeins allra fyrst
að hann réri á hverri nóttu.
Ég besefan viðra um bjarta nótt,
og bjartsýnn ég áfram hann teymi.
Ótrauður áfram haldinn sótt,
öllum verkjum bara gleymi.
Upp á konuna kemst ég ekki,
krankleikinn er slíkur.
Þetta böl nú ég þekki,
að þurfa’ afþakka píkur.
Hann var gripinn við að gera’ða,
gómaður með Höllu.
Hann var ekkert að fela’ða,
og fór bara úr öllu.
Með bísperrt sparitól,
ég spenntur bíð og vona.
Að nokkrum nóttum eftir jól,
njótumst ég og mín kona.
Botninn prýðir bústna snót,
brjóstin einnig lagleg.
Tel að ekki hætis hót,
hún sé mönnum skaðleg.
Þér við lendar ljúfa frú,
læt ég endast nótt án trega.
All-vel kenndur er ég nú,
og mér stendur bærilega.
Fann þessar vísur hér og þar umnetið hehe.vonandi verður ykkur ekki brátt í brók af vísunum.
Athugasemdir
Held fyrir augun og roðna
Líney, 30.10.2008 kl. 15:17
hehe til þess er leikurinn gerður,,,,min kæra líney
Borgarfjardarskotta, 30.10.2008 kl. 15:21
Held að það hafi komið einhver tepruháttur með aldrinum hjá mér,hí hí
En hef gott af því að láta hrista aðeins uppí mér, úps gæti kannski misskilist en só be it, takk fyrir mig og eigðu góðar stundir
Helga Rós Sveinsdóttir, 7.11.2008 kl. 09:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.